Vanillu muffins!
- Kolbrún Erlendsdóttir
- Feb 12, 2016
- 1 min read

Uppskriftin:
250gr. Sykur
140gr. Smjör
2 meðal stór egg
250gr. Hveiti
1 1/2 msk. Vanilludropar
1 tsk. Lyftiduft
1 - 2 dl. Mjólk
Þeytið saman smjör og sykur í þrjár mínútur, bætið einu og einu eggi saman við. Þeytið vel á milli.
Sigtið saman hveiti og lyftidufti ofan í blönduna. Bætið einnig saman við vanilludropunum og mjólkinni í blönduna. Blandið vel saman þar til blandan er orðin silkimjúk.
Setið í form og inní ofn í 20 mín. við 180c.
Kælið alveg að bakstri loknum og skreytið með góðu kremi.

Commentaires