Fiskur í Satay sósu!
- Kolbrún Erlendsdóttir
- Apr 7, 2016
- 1 min read
Uppskrift
600g Hvítur fiskur, skorinn í hæfilega stóra bita
200g Satay sósa
1 dós kókosmjólk
1 Paprika, skorin í teninga
1 Kúrbítur, skorinn í teninga
2 Stórar gulrætur, skornar í teninga
1 Rauðlaukur, skorinn í bita
Lítill brokkolihaus, skorinn í bita
Salt & pipar
Ólífuolía og/smjör til steikingar
Aðferð
Ofn hitaður í 200 gráður. Grænmetið er steikt á pönnu upp úr smjöri og/eða ólífuolíu þar til það fer að mýkjast. Þá er satay sósunni og kókosmjólkinni bætt út á pönnuna og blandað saman við grænmetið. Öllu er svo hellt yfir í eldfast mót og meira smjör bætt út á pönnuna. Fiskurinn er kryddaður með salti og pipar og steiktur á báðum hliðum í 1-2 mínútur. Því næst er fiskurinn lagður ofan á grænmetið í eldfasta mótinu.
Sett inn í ofn í 5-10 mínútur eða þar til fiskurinn er eldaður í gegn (fer mikið eftir þykkt fisksins).
Comments